Á reglulegum blaðamannafundi þann 8. mars síðastliðinn fór talsmaður utanríkis- og evrópumálaráðuneytis Frakklands yfir nokkur atriði og svaraði spurningum. Ein þessara spurninga snerist um Ísland:
Er útkoma nýlegrar þjóðaratkvæðagreiðslu á Íslandi líkleg til að hafa neikvæð áhrif á samningsferli Íslands við Evrópusambandið?
Talsmaður franska ríkisins svaraði henni með eftirfarandi hætti:
"Við hvetjum íslensku ríkisstjórnina í viðleitni sinni til að leiða málið til lykta með samningaviðræðum við Bretland og Holland. Alþjóðasamfélagið verður líka að halda áfram áætlunum sem snúast um betrumbætur á fjármalaregluverkinu, til að slík vandamál endurtaki sig ekki.
Skýrsla Framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins um Ísland er í skoðun hjá leiðtogaráði sambandsins, sem er það vald sem tekur ákvarðanir um stækkunarmál. Leiðtogaráðið mun gefa út ákvörðun sína þegar sá tími kemur.
Aðildarumsóknin mun verða skoðuð á sama hátt og aðrar til þessa, með hliðsjón af eigin ágæti, hversu vel landið uppfyllir aðildarskilmálana (Kaupmannahafnarskilmálana) og af getu ESB til að stækka. Þetta er gert samkvæmt ákvörðunum ráðsins frá 2006."
