
Fransk / þýska sjónvarpsstöðin „Arte” fagnar tuttugu ára afmæli í október 2010. Menningarumfjöllun stöðvarinnar og þáttagerð hefur gert hana að ómissandi lið í frönskum og þýskum sjónmiðlum. Í tilefni af þessum tímamótum stendur áhorfendum til boða að enduruppgötva áhrifamestu augnablikin í sjónvarpsdagskrá „Arte”. Afmælisdagskráin inniheldur meðal annars vel valdar heimildarmyndir, kvikmyndir, þætti, tónlistar- og menningarumfjöllun í bland við aðra vinsæla dagskrá.
Nánari upplýsingar má finna á vefsíðu „Arte”:
