Frakkland á Íslandi Franska sendiráðið í Reykjavík
fontsizeup fontsizedown

 français    íslenska  
Upphafssíða » Fransk-íslenskar fréttir » Menning » Eldri fréttir

Sérstakur fyrirlestur Vincent Debaene um Claude Lévi-Strauss og Regnskógabeltið raunamædda [ fr ]

Í tilefni af því að stórvirkið Regnskógabeltið raunamædda eftir mannfræðinginn Claude Lévi-Strauss er nú komið út í íslenskri þýðingu Péturs Gunnarssonar býður Alliance française til landsins Vincent Debaene, en hann er sérfræðingur í verkum Claude Lévi-Strauss og sá um útgáfu heildarverka hans í hinni virtu La Pléiade ritröð hjá Gallimard útgáfunni í Frakklandi.

Fyrirlesturinn verður haldinn fimmtudaginn 27. október, frá kl. 16:00 til 18:00, í Háskóla Íslands, Háskólatorgi, sal HT 103.

Dagskráin í heild sinni:

1. Torfi H. Tulinius: "Staða C. Lévi-Strauss í hugmyndaheimi Frakka"

2. Sigríður Dúna Kristmundsdóttir: "Claude Lévi-Strauss og mannfræðin"

3. Pétur Gunnarsson, rithöfundur og þýðandi Regnskógabeltisins raunamædda fjallar um þýðinguna og les kafla úr henni.

4. Fyrirlestur Vincent Debaene, "Claude Lévi-Strauss og Regnskógabeltið raunamædda", fyrirlestur á ensku.

5. Umræður


Síðasta uppfærsla þann 25.10.2011

Áhugaverðir tenglar

Facebook Twitter Google+ Storify Foursquare Youtube Dailymotion Flickr RSS