Frakkland á Íslandi Franska sendiráðið í Reykjavík
fontsizeup fontsizedown

 français    íslenska  
Upphafssíða » Fransk-íslenskar fréttir » Heimsóknir

Nýr sendiherra afhendir forseta Íslands trúnaðarbréf [ fr ]

[4. nóvember 2011]

Nýr sendiherra Frakklands á Íslandi, Marc Bouteiller, afhenti forseta Íslands, Hr. Ólafi Ragnari Grímssyni, trúnaðarbréf sín á fundi 2. nóvember 2011.

Á fundi sínum, sem var einstaklega vinalegur og áhugaverður, ræddu forseti Íslands og nýji sendiherrann um hversu rótgróin, en jafnframt hversu lifandi tengsl ríkjanna séu. Í menningarmálum ræddu þeir t.d. 100 ára afmæli Alliance française í Reykjavík, sem haldið var upp á í síðasta mánuði. Sá viðburður ber vitni um hversu mikilvægt starf er unnið til að rækta samband Frakklands og Íslands.

Einnig ræddu þeir þrjú svið sem eru mikilvæg fyrir nánustu framtíð:
- samvinnu á sviði vísinda, þá sérstaklega lífvísinda og jarðfræði,
- mögulegs samstarfs milli landanna í jarðhitamálum, sérstaklega hvað varðar þróunarlöndin,
- nýja möguleika sem opnast á Norðurskautinu og heimsóknir Michels Rocard, sérlegs sendimanns forseta Frakklands í málefnum heimskautanna.


Síðasta uppfærsla þann 04.11.2011

Áhugaverðir tenglar

Facebook Twitter Google+ Storify Foursquare Youtube Dailymotion Flickr RSS