Frakkland á Íslandi Franska sendiráðið í Reykjavík
fontsizeup fontsizedown

 français    íslenska  
Upphafssíða » Fransk-íslenskar fréttir » Heimsóknir

Juppé og Össur: Aukið samtarf um Norðurslóðir [ fr ]

8. mars 2012

Össur Skarphéðinsson, utanríkisráðherra Íslands, fór í opinbera heimsókn til Alain Juppé, utanríkisráðherra Frakklands, þann 7. mars. Hann hitti einnig Jean Leonetti, evrópumálaráðherra, á vinnukvöldverði. Að auki hitti utanríkisráðherra Michel Rocard, en hann er sérlegur sendimaður forseta Frakklands í málefnum heimskautanna.

Aðildarviðræður Íslands við Evrópusambandið var eitt aðalumræðuefnið. Viðræðurnar hafa haldið áfram jafnt og þétt síðan þær hófust 26. júlí 2010, en þær byggja að mörgu leyti á aðild Íslands að Evrópska efnahagssvæðinu. Frakkland er jákvætt gagnvart aðild Íslands að ESB.

Málefni er snerta viðskiptatengsl landanna tveggja voru rædd, en þar má sérstaklega nefna Fransk-íslenska viðskiptaráðið. Ráðherrarnir sammæltust um að blása nýju lífi í þessi tengsl. Viðskiptaráðið verður endurvakið í næsta mánuði, með virku starfi bæði í Frakklandi og á Íslandi.

Ísland og Frakkland lýsa yfir vilja til að treysta samstarf sitt um málefni Norðurheimskautssvæðisins, sérstaklega þá rannsóknir á því sviði. Frakkland hefur komið sér upp sérþekkingu á sviðinu, sem á sér upphaf fyrir margt löngu og er víða viðurkennd. Fimm sameiginlegum verkefnum hefur verið ýtt úr vör:

- Ráðstefna um Norðurheimskautssvæðið í París haustið 2012, undir formerkjum OECD, og samhliða ljósmyndasýning á verkum Ragnar Axelssonar.
- Íslenskum vísindamönnum verður gert kleift að stunda rannsóknir á rannsóknarstöðvum Frakklands á Svalbarði og á Suðurskautslandinu.
- Þátttaka franskra vísindamanna í rannsóknarverkefnum á vegum Norðurskautsráðsins sem hýst eru á Íslandi (PAME - Protection of the Arctic Marine Environment working group og CAFF - Circumpolar Arctic Flora and Fauna). Einnig styrking samstarfsverkefna Frakklands og Íslands.
- Viljayfirlýsing mun bráðlega vera undirrituð um samstarf milli Háskóla Akureyrar og Université Pierre et Marie Curie (UPCM).
- Aðgengi íslenskra vísindamanna að stóru alþjóðlegu rannsóknarverkefni (ACCESS) í umsjá UPCM, fjármögnuðu af Evrópusambandinu, um efnahagsleg og félagsleg áhrif loftslagsbreytinga á norðurslóðum.

Í málefnum Miðausturlanda voru ráðherrarnir að mestu leyti sammála, en þeir ræddu kjarnorkuáætlun Írana og ofbeldið sem almenningur verður fyrir af hálfu sýrlensku ríkisstjórnarinnar.

JPEG - 120.3 ko
Össur Skarphéðinsson, utanríkisráðherra Íslands, og Alain Juppé, utanríkisráðherra Frakklands, í París 7. mars
JPEG - 94.7 ko
Össur Skarphéðinsson, utanríkisráðherra, og Michel Rocard, sérlegur sendimaður forseta Frakklands í málefnum heimskautanna
Herbergið sem Rocard tók á móti Össuri í er flokkað sem söguleg verðmæti, meistaraverk í Art Deco stíl. Það er kallað „baðherbergi drottningarinnar,“ til minningar um heimsókn Englandskonungs og síðar Elísabetar drottningar.

Síðasta uppfærsla þann 15.03.2012

Áhugaverðir tenglar

Facebook Twitter Google+ Storify Foursquare Youtube Dailymotion Flickr RSS