Sendiherra hitti meðal annars bæjarstjóra Akureyrar, Eirík Björgvin Björnsson. Einnig hitti hann nokkra forkólfa atvinnulífs á svæðinu, til að mynda forstjóra Samherja, formann Atvinnuþróunarfélags Eyjafjarðar, og fulltrúa frá fiskeldisstöð á Húsavík.
Við háskólann á Akureyri átti sendiherra fund með rektor skólans, Stefáni Sigurðssyni, þar sem rætt var einkum um að styrkja nemendaskipti á milli íslenskra og franskra námsmanna (Erasmus skipti við háskólann í Lyon og Nantes) og málefni sem tengjast heimskautasvæðinu. Marc Bouteiller hitti einnig stjórnanda Stofnunar Vilhjálms Stefánssonar, Níels Einarsson, en þeir ræddu meðal annars um möguleika á fransk-íslenskri samvinnu í tengslum við Norðurheimsskautið og Suðurheimskautasvæðið, þar sem Frakkland rekur tvær rannsóknarstöðvar (Dumont d’Urville og Concordia) sem gætu staðið íslenskum rannsakendum til boða.
Arnaud Serniotti og Íris Hrund Þórarinsdóttir heimsóttu Menntaskólann á Akureyri og fræddu nemendur um nám í Frakklandi, þar á meðal nám sem kennt er á ensku. Þau áttu einnig fund með frönskukennurum sem búsettir eru á Akureyri, færðu þeim námsgögn og ræddu um möguleikann á aukinni þátttöku franska sendiráðsins í tengslum við kynningu á franskri tungu og námi í Frakklandi.
Að lokum opnaði sendiherra Frönsku kvikmyndahátíðina á Akureyri, sem haldin var í þriðja sinn í Borgarbíó, að viðstöddum góðum hópi gesta en meðal boðsgesta var bæjarstjóri Akureyrar.

