Frakkland á Íslandi Franska sendiráðið í Reykjavík
fontsizeup fontsizedown

 français    íslenska  
Upphafssíða » Fransk-íslenskar fréttir » Menning » Eldri fréttir

Franskir dagar á Fáskrúðsfirði 2010 [ fr ]

3. ágúst 2010

Hin árlega bæjarhátíð Fáskrúðsfjarðar, Franskir dagar, var haldin þann 23, 24 og 25. júlí síðastliðinn.

Hátíðin, sem nú var haldin í fimmtánda skiptið, var skipulögð til að heiðra minningu hinna fjölmörgu frönsku sjómanna sem sóttu íslandsmið frá lokum 19 aldar til um 1940. Á þessum tíma glötuðu nærri 4000 sjómenn lífi sínu á sjó.

Frú Caroline Dumas, sendiherra Frakklands á Íslandi, tók þátt í þessum viðburði, sem ásamt því að heiðra minningu franskra sjómanna, er til að fagna vinatengslum á milli Íslands og Frakklands. Við hlið frú Dumas á hátíðarhöldunum var Helga Jónsdóttir, bæjarstýra Fjarðarbyggðar, ásamt fulltrúum frá franska bænum Gravelines.

Í ræðu sinni lofaði sendiherra einstakt framtak bæjarfélagsins að halda þessum minningum á lofti, einkum með viðhaldi á minnisvörðum á svæðinu. Var það henni mikils virði að vera viðstödd og lýsti hún yfir þakklæti sínu og franska ríkisins, til íslenskra stjórnvalda og sér í lagi til bæjarstjórnar Fáskrúðsfjarðar fyrir skipulagningu Franskra daga. Því þeir veita færi á að minnast og heiðra sameiginlega menningararfleið Íslands og Frakklands.


Síðasta uppfærsla þann 05.09.2012

Áhugaverðir tenglar

Facebook Twitter Google+ Storify Foursquare Youtube Dailymotion Flickr RSS