Frakkland á Íslandi Franska sendiráðið í Reykjavík
fontsizeup fontsizedown

 français    íslenska  
Upphafssíða » Fransk-íslenskar fréttir

Franski gítarleikarinn Marc Ducret spilar á Jazzhátíð Reykjavíkur

Allar götur síðan á Norrænum Jazzdögum í Reykjavík árið 1990 hefur verið haldin árleg jazzhátíð í Reykjavík. Hún hefur spunnið sig í gegnum almanakið og verið bæði um vor og vetur. Nú er hún á sumrin, og vonandi stendur ágústmánuður í Reykjavík undir þeim stimpli þetta árið. í tilefni þess að 20 ár eru liðin frá fyrstu Jazzhátíðinni í Reykjavík hefur verið sett saman dagskrá sem nær yfir 20 daga, frá 13. ágúst til 1. september. Gera má ráð fyrir hartnær 50 atburðum sem spanna allt frá einleiksatburðum til stórsveitarkvölda.

Þann 21. ágúst kl. 21 verður haldin Gítarveisla Jazzhátíðar Reykjavíkur, sem hefur undanfarin ár verið einn vinsælasti viðburður hennar, i NASA. Þar mun hinn franski Marc Ducret koma fram ásamt Hilmari Jenssyni og trommaranum Jim Black.

Aðrir sem leika munu þetta kvöld eru Björn Thoroddsen með sænsku ofurgítarstjörnunni Ulf Wakenius, Guðmundur Pétursson ásamt hljómsveit sinni með tónlistina sem komið hefur út undir nafninu Ologies. Í hljómsveitinni eru Mattías Hemstock trommur og trommuvél, Róbert Reynisson gítar, Davíð Þór Jónsson hljómborð og gítar, Valdimar Kolbeinn Sigurjónsson bassi og Halldór Eldjárn slagverk.

Miðar eru til sölu á midi.is, smellið hér.


Síðasta uppfærsla þann 06.10.2009

Áhugaverðir tenglar

Facebook Twitter Google+ Storify Foursquare Youtube Dailymotion Flickr RSS