Frakkland á Íslandi Franska sendiráðið í Reykjavík
fontsizeup fontsizedown

 français    íslenska  
Upphafssíða » Fransk-íslenskar fréttir » Menning

Frábærar viðtökur Frönsku kvikmyndahátíðarinnar! [ fr ]

2 mars 2012


Frá því árið 2004, þegar mynd Jacques Perrin, "Heimur farfuglanna", var sýnd, hefur Franska kvikmyndahátíðin ekki fengið þvílíkar viðtökur. Aðsóknartölurnar tala sínu máli! Meira en 8000 manns gerðu sér leið í bíó á franska kvikmynd, og í fyrsta skiptið var hátíðin framlengd í tvær vikur í Bíó Paradís.

Fremst í flokki var að sjálfsögðu "Listamaðurinn", sem nýlega hlaut fimm Óskarsverðlaun, þar á meðal fyrir bestu mynd og besta leikara í aðalhlutverki. Þar áður var myndin þegar búin að vinna sex Sesar-verðlaun, sjö Bafta-verðlaun, ein Goya-verðlaun, þrjú Golden Globe-verðlaun og fern Spirit Awards-verðlaun (sem eru eins konar Óskarsverðlaun óháðrar kvikmyndagerðar). Og myndin er enn í kvikmyndahúsum – ekki missa af henni í Háskólabíó!

"Listamaðurinn" skyggir þó ekki á hinar myndir hátíðarinnar. Vert er að minnast góðu gengi "Stríðsyfirlýsingar" eða "La Guerre est déclarée", sem snart hjörtu margra. Aðrar myndir hátíðarinnar fundu líka sinn áhorfendahóp og sumar myndirnar vöktu líflegar umræður meðal fólks, bæði með og á móti.

Eins og í Reykjavík var Frönsku kvikmyndahátíðinni á Akureyri mjög vel tekið. Þrátt fyrir að fjöldi myndanna fyrir norðan hafi verið takmarkaðri var öllum flokkum gerð góð skil. Þar var að sjálfsögðu "Listamaðurinn" og myndin "Stríðsyfirlýsing", en vinsældir þeirra tveggja hafa ekki farið framhjá neinum. Aðrar myndir á Akureyri voru "Sá sem kallar" og "Öld myrkursins", sem drógu að áhugasama áhorfendur um kvikmyndagerð í Tsjad og Kanada.

Hvort sem um er að ræða höfuðborg landsins eða höfuðborg norðursins, þá tókst Franska kvikmyndahátíðin 2012 með eindæmum vel.


Síðasta uppfærsla þann 05.03.2012

Áhugaverðir tenglar

Facebook Twitter Google+ Storify Foursquare Youtube Dailymotion Flickr RSS