Franska ríkið veitir á ný íslenskum nemendum styrki til framhaldsnáms í Frakklandi. Umsóknarfrestur er til 6. maí, 2012. Um er að ræða 5 styrki. Námsmenn á hvaða fræðisviði sem er geta sótt um styrkina. Forgang hafa nemendur sem stefna á masters- eða doktorssnám, og þeir sem vilja klára tvær annir eða fleiri af námi sínu í Frakklandi.
Nánari upplýsingar um styrkina fást hér.